60 ára vígsluafmæli Garðakirkju – hátíðarguðsþjónusta og afmælissamkoma

Hátíðarguðsþjónusta í Garðakirkju kl. 11:00

Sunnudaginn 30. ágúst verður 60 ára vígsluafmælis Garðakirkju minnst með hátíðlegri dagskrá. Afmælishátíðin hefst með guðsþjónustu í Garðakirkju kl. 11 og er hún jafnframt síðasta sumarmessa ársins.
Guðni Th. Jóhannesson, sagnfræðingur og fyrrverandi forseti Íslands, flytur ávarp. Prestar í Garðabæ og Hafnarfirði þjóna fyrir altari ásamt Guðrúnu Karls Helgudóttur, biskupi Íslands. Prestarnir sem þjóna eru sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sr.Matthildur Bjarnadóttir, sr. Benedikt Sigurðsson, sr. Bragi J. Ingibergsson, sr. Bolli Pétur Bollason, sr. Jónína Ólafsdóttir og sr. Margrét Lilja Vilmundardóttir.
Garðakórinn syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar. Hallveig Rúnarsdóttir syngur einsöng við undirleik Agnars Más Magnússonar.

Minningarathöfn í Garðakirkjugarði kl. :11:50

Við athöfnina verða blómsveigar lagðir að leiðum brautryðjenda í Garðakirkjugarði – fólks sem gegndi lykilhlutverki í enduruppbyggingu Garðakirkju og safnaðarstarfsins.

Afmælissamkoma í Garðaholti kl. 12:00

Að guðsþjónustunni lokinni, kl. 12, verður boðið til afmælissamkomu í samkomuhúsinu Garðaholti.
Almar Guðmundsson bæjarstjóri flytur ávarp og dr. Sigurvin Lárus Jónsson flytur afmæliserindi. Þá mun Ingimundur Sigurpálsson formaður kynna hið nýstofnaða Hollvinafélag Garðakirkju og gestum boðið að gerast stofnfélagar.
Ljúfar veitingar verða í boði.
Verið hjartanlega velkomin til að fagna þessum merku tímamótum í sögu Garðakirkju.

Báðir dagskrárliðir verða í beinu streymi á YouTube-rás Garðasóknar og Facebook-síðu Sumarmessa.
Sumarmessur í Garðakirkju eru samstarfsverkefni safnaðanna á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði.

Garðakirkja
Sunnudagur 30. ágú
11:00
Garðakórinn
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta