Í tilefni af 60 ára vígsluafmæli Garðakirkju hefur verið ákveðið að stofna Hollvinafélag Garðakirkju en kirkjan hefur verið sameiningartákn og stolt Garðbæinga um langa tíð. Stofnfundur verður í Garðakirkju miðvikudaginn 26. ágúst kl. 17:30.
Tilgangur félagsins er að styðja við Garðakirkju, kirkjustaðinn og starfsemi sem þar fer fram, stuðla að vönduðu viðhaldi kirkjunnar og varðveislu menningar-, sögu- og minjaverðmæta hennar til framtíðar, efla vitund og fræðslu um staðinn og taka þátt í að móta framtíðarsýn hans í samstarfi við þá sem fara með lögbundið eða samningsbundið hlutverk á staðnum.
Dagskrá fundarins:
- Setning fundar
- Kosning fundarstjóra og fundarritara
- Stofnun félagsins
- Samþykktir félagsins
- Ákvörðun um félagsgjald
- Kosning stjórnar og varamanna
- Kosning skoðunarmanns og varamanns
- Önnur mál
- Fundarlok
Allir sem mæta á fundinn geta skráð sig sem stofnendur.
Verið hjartanlega velkomin á stofnfundinn.
Sóknarnefnd Garðasóknar