Sumarmessa í Garðakirkju 9. ágúst - hjólreiðamessa

Sunnudaginn 9. ágúst verður hin árlega hjólreiðamessa safnaðanna í Hafnarfirði, Álftanesi og Garðabæ. Lagt verður af stað frá tveimur stöðum, Vídalínskirkju og Ástjarnarkirkju, klukkan 9:30 og hóparnir sameinast svo í Hafnarfjarðarkirkju og halda þaðan áfram. Stöðvað verður við Fríkirkjuna í Hafnarfirði og þaðan hjólað í Víðistaðakirkju þar sem hressing bíður hópsins. Hjólatúrinn endar í sumarmessu í Garðakirkju.

Sr. Bragi J. Ingibergsson og sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur Kjalarnessprófastsdæmis, þjóna fyrir altari og predika. Kristín Jóhannesdóttir organisti stýrir tónlistinni.

Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu í messukaffinu í hlöðunni á Króki að messu lokinni.

Beint streymi á facebook.com/sumarmessur.

Brottfarartímar:

  • 09:30  Ástjarnarkirkja
  • 09:30  Vídalínskirkja
  • 10:00  Hafnarfjarðarkirkja
  • 10:20  Fríkirkjan í Hafnarfirði
  • 10:40  Víðistaðakirkja
  • 11:00  Garðakirkja – sumarmessa.

 

Tökum þátt og eflum líkama, sál og anda!

Verið öll hjartanlega velkomin.

Sumarmessur eru í Garðakirkju alla sunnudaga í júní, júlí og ágúst. Þær eru samstarfsverkefni safnaðanna á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði.
Garðakirkja
Sunnudagur 9. ágú
11:00
Sr. Bragi J. Ingibergsson
Sr. Hans Guðberg Alfreðsson
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta