Sumarmessa kl. 11.00. Sr. Sighvatur Karlsson þjónar fyrir altari. Kári Þormar organisti sér um tónlistina og Cantus-Kór Hafnarfjarðakirkju syngur.
Ásgeir Páll Ágústsson, söngvari, útvarpsmaður og gleðigjafi, lætur ljós sitt skína í messukaffinu í hlöðunni á Króki, eftir messu.
Beint streymi á facebook.com/sumarmessur.
Verið innilega velkomin í Garðakirkju á sunnudag kl. 11 og kaffi í hlöðunni á Króki á eftir.
Sumarmessur í Garðakirkju er samstarfsverkefni safnaðanna á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði.