Sumarmessa kl. 11.00. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari. Kári Þormar og Cantus-kór Hafnarfjarðarkirkju sjá um tónlistina.
Elísabet Halldóra Einarsdóttir leikur á harmonikku í messukaffinu í hlöðunni á Króki, eftir messu.
Beint streymi á facebook.com/sumarmessur.
Verið innilega velkomin í Garðakirkju á sunnudag kl. 11 og kaffi í hlöðunni á Króki á eftir.
Sumarmessur í Garðakirkju er samstarfsverkefni safnaðanna á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði.