Sumarmessa í Garðakirkju 19. júlí

Sumarmessa kl. 11.00. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson þjónar fyrir altari.

Örn Magnússon organisti og Ásta Sigríður Arnardóttir sjá um tónlistina.

Örn er manna fróðastur um íslensk hljóðfæri og mun í guðsþjónustunni og messukaffinu á eftir segja frá sögu þeirra og sýna. Ásta Sigríður er söngkona, sem útskrifaðist frá tónlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2023. Beint streymi á facebook.com/sumarmessur. 

Verið innilega velkomin í Garðakirkju á sunnudag kl. 11 og kaffi í hlöðunni á Króki á eftir.

Sumarmessur í Garðakirkju er samstarfsverkefni safnaðanna á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði.

Garðakirkja
Sunnudagur 19. júl
11:00
Sr. Sigurvin Lárus Jónsson
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta