Sumarmessa kl. 11.00. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari.
Kári Þormar sér um tónlistina í þessari fallegu sumarmessu á Garðaholtinu og félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja.
Melkorka Rós Hjartardóttir syngur hrífandi lög við undirleik Fannars Pálssonar í messukaffinu í hlöðunni á Króki, eftir messu.
Tilvalið að taka sér stuttan bíltúr eða jafnvel göngu að Garðakirkju og njóta.
Sumarmessur í Garðakirkju er samstarfsverkefni safnaðanna á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði.