Hvað ungur nemur gamall temur.
Eldri borgurum er sérstaklega boðið til messunnar í Vídalínskirkju 17. maí ásamt hinum sem yngri eru.
Garðakórinn syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar og söfnuðurinn fær heimsókn nemenda úr Tónlistarskóla Garðabæjar.
Dr. Sigurvin Lárus Jónsson þjónar fyrir altari. Sr. Magnús Björn Björnsson flytur hugvekju.
Eftir messuna er boðið upp á messukaffi í safnaðarheimilinu.
Verið öll innilega velkomin til kirkjunnar!