Messað er í Garðakirkju fyrsta sunnudag hvers mánaðar kl. 11:00 yfir vetrartímann - að janúar undanskildum en í apríl er helgistund á föstudeginum langa. Yfir sumarið þ.e. í júní, júlí og ágúst er messað alla sunnudaga. Þá eru Sumarmessur í gangi sem eru samstarf sóknanna á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði.
Sunnudaginn 3. maí verður síðasta vetrarmessan að sinni í Garðakirkju kl. 11. Dr. Sigurvin Lárus Jónsson predikar og þjónar fyrir altari. Í messunni verður m.a. altarisganga sem kirkjugestir eru hvattir til að taka þátt í. Félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.
Garðakirkju er ákaflega falleg kirkja í umhverfi sem sannarlega má kalla sveitalegt þó á höfuðborgarsvæðinu sé. Garðbæingum og reyndar fólki alls staðar af landinu þykir ákaflega vænt um kirkjuna enda er þar notalegur andi sem gefur frið í hjarta. Sjáumst í Garðakirkju.