Þriðjudaginn 14. apríl verður Danshópurinn Sporið í opnu húsi og sýnir skemmtilega þjóðdansa. Kyrrðarstund hefst í Vídalínskirkju kl. 12:00 og opið hús í safnaðarheimilinu kl. 12:30.
Boðið er upp á súpu og brauð á vægu verði.
Allir eru velkomnir í kyrrðarstund í Vídalínskirkju og á opið hús í safnaðarheimilinu.
Danshópurinn Sporið:
Snemma á 8. áratug síðustu aldar starfaði þjóðdansahópur á Hvanneyri. Á þeim grunni byggðist síðar Danshópurinn Sporið, sem starfað hefur af miklum krafti síðan árið 1995. Þess má geta að á Hvanneyri eiga þjóðdansar sér jafnvel enn lengri sögu því Svava Þórhallsdóttir, skólastjórafrú kenndi þar þjóðdansa þegar á fyrri hluta 20. aldar.
Sporið sýnir íslenska þjóðdansa 20-30 sinnum á ári og má því segja að starfsemin sé í blóma.
----
Kyrrðar- og íhugunarstund er haldin hvern þriðjudag kl 12:00 í Vídalínskirkju. Kyrrðarstund er í formi stuttrar helgistundar þar sem fólk getur komið og setið í þögninni og íhugað, bæði fyrir stund sem hefst kl 12:10, sem og á meðan stundin fer fram. Leikin er falleg og róandi tónlist í bland við bænir og annað uppbyggilegt efni.