Frá Vídalínskirkju:
Kl. 15:00, verður arkað af stað í árvissa Helgigöngu frá Vídalínskirkju að Garðakirkju. Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson leiða gönguna að þessu sinni. Vídalínskirkja opnar kl. 14:45 og hitað verður upp fyrir gönguna með andlegu fóðri áður en lagt er af stað. Áð verður reglulega á leiðinni og hlustað á valin erindi úr Píslarsögunni.
Gönguleiðin, sem er bæði fjölbreytt og falleg, er um 6 km löng og tekur rúmlega eina og hálfa klukkustund í göngu. Gönguhraða er stillt þannig að flestir sem eru við sæmilega heilsu ættu að geta gengið með. Veðurútlitið er sannarlega ágætt sé miðað við undanfarna daga; 0 stiga hiti, skýjað og hægur vindur. Engu að síður er göngufólk hvatt til að klæða sig vel, vera með góðan fótabúnað og gott er að hafa lítinn bakpoka með aukafatnaði, orkuríku nesti og drykk.
Frá Bessastaðakirkju:
Kl. 16:00, leiðir sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur, samskonar Helgigöngu frá Bessastaðakirkju að Garðakirkju. Gönguleiðin er um 3 km löng og tekur rúmlega 45 mínútur í göngu. Sú ganga hentar ekki eingöngu íbúum Álftaness heldur einnig þeim Garðbæingum sem treysta sér ekki í lengri gönguna.
Helgistund í Garðakirkju:
Kl. 17:00, Helgistund með kórsöng og Passíusálmalestri hefst svo í Garðakirkju kl. 17:00. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir stundina. Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona les valda Passíusálma og Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Þetta er hlýleg og uppbyggileg athöfn sem kemur kirkjugestum í hinn sanna anda föstudagsins langa.
Gott er fyrir göngufólk að huga í tíma hvernig það hyggst fara aftur heim að athöfn lokinni. Þegar veðrið er gott hafa sumir stundum viljað ganga til baka. Aðrir hafa komið bílum sínum á planið hjá Garðakirkju áður en ganga hefst eða útvegað sér far á annan hátt.
Myndirnar hér að neðan eru frá göngunni sem farin var á föstudaginn langa á síðasta ári. Þú getur stækkað þær með því að smella á eina.