Páskahelgihaldið í Garðabæ

Fimmtudagur 2. apríl – Skírdagur

Kl. 17:00 Helgistund og afskrýðing altaris í Garðakirkju.
Sr. Hans Guðberg Alfreðsson þjónar. Garðálfarnir, kór eldri borgara, syngur undir stjórn Ástvaldar Traustasonar organista.

Kl. 20:00 Helgistund og afskrýðing altaris í Vídalínskirkju.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar. Söngkonurnar Jóhanna Ósk Valsdóttir og Særún Rúnudóttir syngja, organisti er Jóhann Baldvinsson.

Föstudagur 3. apríl – Föstudagurinn langi

Kl. 15:00 Helgiganga frá Vídalínskirkju að Garðakirkju.
Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson leiða gönguna.

Kl. 16:00 Helgiganga frá Bessastaðakirkju að Garðakirkju.
Sr. Hans Guðberg Alfreðsson leiðir gönguna.

Kl. 17:00 Helgistund með kórsöng og Passíusálmalestri í Garðakirkju.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir stundina. Jóhanna Vigdís Arnardóttir leikkona les valda Passíusálma. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.

Sunnudagur 5. apríl – Páskadagur

Kl. 08:00 Hátíðarguðsþjónusta í Vídalínskirkju.
Sr. Matthildur Bjarnadóttir þjónar. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Morgunverður í safnaðarheimilinu að lokinni athöfn.

Kl. 08:00 Hátíðarguðsþjónusta í Garðakirkju.
Sr. Hans Guðberg Alfreðsson og Vilborg Ólöf Sigurðardóttir djákni þjóna. Álftaneskórinn syngur undir stjórn Ástvaldar Traustasonar organista. Heitt súkkulaði og rúnstykki í safnaðarheimilinu að guðsþjónustu lokinni í boði Kvenfélags Álftaness.

Kl. 11:00 Hátíðarguðsþjónusta á Ísafold.
Sr. Matthildur Bjarnadóttir leiðir stundina. Félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.

Prestar, starfsfólk og sóknarnefnd Garðasóknar senda Garðbæingum bestu óskir um kærleiksríka og gleðilega páskahátíð.

 

Smelltu á auglýsinguna hér að neðan til að sjá hana stærri.

Vídalínskirkja, Garðakirkja
Sr. Hans Guðberg Alfreðsson
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
Sr. Matthildur Bjarnadóttir
Vilborg Ólöf Sigurðardóttir
Ástvaldur Traustason
Jóhann Baldvinsson
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta