Pálmasunnudagur og nú styttist í páska!
Á pálmasunnudag verður sunnudagaskóli á sínum stað kl. 10:00 í Urriðaholtsskóla og hátíðarguðsþjónusta fjölskyldunnar kl 11:00 í Vídalínskirkju.
Gleðin í kirkjunni verður á forsendum unga fólksins. Það er hefð fyrir því á pálmasunnudag hér í Vídalínskirkju að hafa páskaeggjaleit og þetta árið er engin undantekning! Við byrjum á fjölskylduguðsþjónustu og endum á skemmtilegum leik þar sem krakkarnir fá að leita að eggjum um alla kirkjuna. Hver veit nema einhver kíki í heimsókn!
Fermingar í Garðasókn um helgina eru:
Laugardagur 28. mars
Kl. 11:00 Ferming í Vídalínskirkju
Kl. 13:00 Ferming í Garðakirkju
Sunnudagur 29. mars - Pálmasunnudagur
Kl. 11:00 Ferming í Garðakirkju