Fermingar helgina 21. og 22. mars

Fermingin er stór hátíðisdagur fyrir fermingarbörn og fjölskyldur þeirra, dagur sem á að vera umvafinn gleði og hamingju. Börnin hafa verið í fermingarfræðslu vikulega síðan í haust og þau hafa lagt mikið á sig til að koma sem best undirbúin til athafnar. Stóri dagurinn sem fermingarbörnin hafa verið að bíða lengi eftir rennur nú upp og hápunkturinn blasir við. Öll leggjum við okkur sem best fram við að gera þeim daginn eftirminnilegan og fjölskyldur sameinast til að fagna áfanganum. Fermingardagarnir eru sannir hátíðisdagar í kirkjunum.

Fermingarathafnir helgarinnar eru fimm.

Laugardagurinn 21. mars 2025:
  • Kl. 11:00 Ferming í Vídalínskirkju
  • Kl. 13:00 Ferming í Garðakirkju
  • Kl. 15:00 Ferming í Garðakirkju
Sunnudagurinn 22. mars 2025:
  • Kl. 11:00 Ferming í Garðakirkju
  • Kl. 13:00 Ferming í Vídalínskirkju

Prestarnir sr. Benedikt Sigurðsson, sr. Matthildur Bjarnadóttir og dr. Sigurvin Lárus Jónsson þjóna í athöfnunum. Félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista. Jóhanna Guðrún syngur einsöng við undirleik Jóhanns.

Sunnudagaskóli verður 22. mars í Urriðaholtsskóla kl. 10 og í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, kl. 11.

Vídalínskirkja, Garðakirkja
Laugardagur 21. mar
Sr. Benedikt Sigurðsson
Sr. Matthildur Bjarnadóttir
Sr. Sigurvin Lárus Jónsson
Jóhann Baldvinsson
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir
Félagar úr kór Vídalínskirkju
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta