Gospelgleði í Vídalínskirkju kl. 11:00. Gospelkór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Ingvars Alfreðssonar.
Sr. Jóna Hrönn þjónar og mun fjalla um táknmál kirkjunnar og helgihaldsins sem mörgum er hulið en blasir við hinum sem þekkja táknin. Fræðslan hentar fermingarbörnum og öllum þeim sem þrá aukinn skilning og frekari dýpt í helgihaldinu. Messukaffi og ánægjulegt samfélag í safnaðarheimilinu að messu lokinni.
Athöfninni verður streymt á YouTube- og Facebook síðum Vídalínskirkju.
Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10:00 (ath. í vetur verður sunnudagskólinn í kennslustofu í gámaeiningu við hlið skólans).
Messukaffi og leikur eftir samveruna.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 11:00.
Messukaffi og litir eftir samveruna.