Opið hús 10. mars

Á opnu húsi þriðjudaginn 10. mars munu myndlistarkonurnar Aðalheiður Ólafsdóttir og Hulda HreinDal koma í heimsókn og tala um myndlist og málverkasýninguna sem verið hefur í Vídalínskirkju undanfarnar vikur. Þar sýna þær myndir sínar ásamt listakonunum Maríu Möndu og Maríu Rúnar Þrándardóttur. Sýningin hefur vakið mikla athygli bæjarbúa og fjölmargir hafa lagt leið sína í kirkjuna til að njóta myndanna.

Helgistund hefst í Vídalínskirkju kl. 12:00 og opið hús í safnaðarheimilinu kl. 12:30.

Boðið er upp á súpu og brauð á vægu verði.

Allir eru velkomnir á opið hús í safnaðarheimilinu.

Vídalínskirkja, Safnaðarheimili Vídalínskirkju
12:30
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta