Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar 2026 er sunnudaginn 1. mars og er dagurinn tileinkaður börnum og unglingum í kirkjum landsins. Í Vídalískirkju verður sunnudagaskólahátíð kl. 11:00.
Sr. Benedikt Sigurðsson og sr. Matthildur Bjarnadóttir leiða stundina. Barna- og unglingakórar kirkjunnar syngja undir stjórn Ingvars Alfreðssonar og Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur.
Boðið verður upp á veitingar og andlitsmálningu í messukaffinu.
Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10:00 (ath. í vetur verður sunnudagskólinn í kennslustofu í gámaeiningu við hlið skólans). Messukaffi og leikur eftir samveruna