Lionsklúbburinn Eik færði bæði Styrktarsjóði Garðasóknar sem og Ljósberasjóði Vídalínskirkju veglega styrki. Prestar Vídalínskirkju veittu styrkjunum viðtöku í opnu húsi þriðjudaginn 20. janúar sl.
Á myndinni hér að ofan eru frá Lionsklúbbnum Eik þær Laufey Jóhannsdóttir, Jóhanna S. Sigmundsdóttir, Guðrún Yngvadóttir, Sólveig Hannam og Hjördís Sigurðardóttir og frá Garðasókn eru prestarnir Benedikt Sigurðsson, Sigurvin Lárus Jónsson og Matthildur Bjarnadóttir, starfandi sóknarprestur, sem veitti styrkjunum móttöku.
Kirkjan og stjórnir sjóðanna þakka félögum í Lionsklúbbnum Eik kærlega fyrir þessa höfðinglegu styrki sem munu koma sér afar vel.