Sunnudaginn 7. desember kl. 11:00 verður aðventustund barnanna í Vídalínskirkju og jólaball í safnaðarheimilinu á eftir. Sungið og dansað kring um jólatréð og jólasveinninn kemur í heimsókn. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson leiðir stundina ásamt fræðurum sunnudagaskólanna.
Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.