Hátíðarmessa með þátttöku Kvenfélags Garðabæjar í Vídalínskirkju 30. nóvember kl. 11:00.

Hátíðarmessa í Vídalínskirkju kl. 11:00.
Fyrsta sunnudag í aðventu er fallegur siður í Kvenfélagi Garðabæjar í heiðri hafður en þá koma félagskonur að messuhaldi í Vídalínskirkju.

Þjóðbúningnum verður gert hátt undir höfði og eru öll sem eiga slíkan hvött til að mæta í honum til messu. Sr. Matthildur Bjarnadóttir þjónar fyrir altari.  Guðrún Dóra Guðmannsdóttir flytur hugvekju.  

Anna Tóth leikur á selló og félagar úr kór Vídalínskirkju leiða safnaðarsöng undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.

Sunnudagaskóli er í Urriðaholtsskóla kl. 10:00 og í Vídalínskirkju á sama tíma og hátíðarmessan kl. 11:00.

Verið öll innilega velkomin!

Vídalínskirkja, Urriðaholtsskóli
11:00
Sr. Matthildur Bjarnadóttir
Jóhann Baldvinsson
Félagar úr kór Vídalínskirkju
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta