Sunnudaginn 15. júní verður hin árlega hjólreiðamessa safnaðanna í Hafnarfirði, Álftanesi og Garðabæ. Lagt verður af stað frá tveimur stöðum, Vídalínskirkju og Ástjarnarkirkju, klukkan 9:30 og hóparnir sameinast svo í Hafnarfjarðarkirkju og halda þaðan áfram. Stöðvað verður við Fríkirkjuna í Hafnarfirði og þaðan hjólað í Víðistaðakirkju þar sem hressing bíður hópsins. Hjólatúrinn endar í sumarmessu í Garðakirkju.
Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prófastur Kjalarnessprófastsdæmis, þjónar fyrir altari og predikar. Ástvaldur Traustason organisti stýrir tónlistinni.
Í messukaffinu að athöfn lokinni syngur Þorgeir Ástvaldsson inn sumarið.
Brottfarartímar:
- 09:30 Ástjarnarkirkja
- 09:30 Vídalínskirkja
- 10:00 Hafnarfjarðarkirkja
- 10:20 Fríkirkjan í Hafnarfirði
- 10:40 Víðistaðakirkja – hressing
- 11:00 Garðakirkja – sumarmessa.
Tökum þátt og eflum líkama, sál og anda!
Verið öll hjartanlega velkomin.
Sumarmessur eru í Garðakirkju alla sunnudaga í júní, júlí og ágúst. Þær eru samstarfsverkefni safnaðanna á Álftanesi, í Garðabæ og Hafnarfirði.