Vídalínskirkja var þétt setin eða öllu heldur troðfull af kirkjugestum á hinni árlegu konudagsmessu sunnudaginn 23. febrúar. Um 350 manns lögðu leið sína í kirkjuna og enn fleiri fylgdust með í beinu streymi á mbl.is. Messan var hin glæsilegasta í alla staði og veitingarnar í messukaffinu voru einstaklega ljúffengar.
Sr. Arna Grétarsdóttir og sr. Matthildur Bjarnadóttir stýrðu athöfninni og þjónuðu fyrir altari. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir flutti hátíðarávarp í tilefni dagsins. Sigga Beinteins heillaði kirkjugesti með nokkrum falleg lögum eins og henni er einni lagið, Gospelkór Jóns Vídalíns söng á sinn undurljúfa hátt undir stjórn Ingvars Alfreðssonar og Pétur Valgarð Pétursson lék undir á gítar.
Þórunn Birna reiddi fram gómsætar og freistandi veitingar messukaffinu í safnaðarheimilinu að messu lokinni og glæsileg módel sýndu nýjustu tísku frá ILSE Jacobsen. Salurinn var þétt setinn og stemningin kærleiksrík og góð.
Sunnudagaskólarnir í Urriðaholtsskóla og í safnaðarheimili Vídalínskirkju voru líka að venju vel sóttir og dagurinn því fullkominn í Garðasókn.
Opin þriðjudaga-föstudaga frá 10-15,
Kirkjulundi 3
210 Garðabæ
Garðar, Álftanesi
Garðar, Álftanesi