Fjórða sunnudag í aðventu ber upp á 22. desember og þá eru Jólasöngvar fjölskyldunnar í Vídalínskirkju. Hátíðleikinn mun svífa yfir vötnum enda má segja að þessi stund sé upptaktur fyrir jólahátíðina eða litlu jól fjölskyldunnar
Hátíðleg og falleg jólalög verða sungin undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista en hann stýrir einning Garðakórnum sem syngur bæði fyrir og með kirkjugestum.
Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson leiða stundina.
Fjölskyldur eru hvattar til að koma og syngja inn jólin og njóta hátíðleikans.
Ath. sunnudagaskólarnir eru komnir í jólafrí og fara af stað aftur 12. janúar 2025.
Opin þriðjudaga-föstudaga frá 10-15,
Kirkjulundi 3
210 Garðabæ
Garðar, Álftanesi
Garðar, Álftanesi