Fram undan eru góðar stundir í kirkjunni. Sunnudaginn næsta er bleik messa í Vídalínskirkju þar sem hjónin Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson prédika og þjóna fyrir altari. Kór Vídalínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.
Í messunni verður beðið fyrir krabbameinsveikum og ástvinum þeirra en kirkjugestum gefst að auki kostur á að styrkja Krabbameinsfélagið í messukaffinu.
Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10:00 (ath. í vetur verður sunnudagskólinn í kennslustofu í gámaeiningu við hlið skólans). Messukaffi og leikur eftir samveruna.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimili Vídalínskirkju kl. 11:00. Messukaffi og litir eftir samveruna.
Opin þriðjudaga-föstudaga frá 10-15,
Kirkjulundi 3
210 Garðabæ
Garðar, Álftanesi
Garðar, Álftanesi