Batamessa og bangsa- og gæludýraguðsþjónusta 6. október

Sunnudaginn 6. október verða tvær athafnir í Garðasókn kl. 11.00:

  • Batamessa í Garðakirkju. Þar þjóna Jóna Hrönn Bolladóttir og Bjarni Karlsson, félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja og vinir í bata flytja vitnisburði. Eftir stundina verður boðið upp á léttar veitingar í Króki.
  • Bangsa- og gæludýraguðsþjónusta í Vídalínskirkju. Þar syngja barnakórar Vídalínskirkju undir stjórn Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur, og Matthildur Bjarnadóttir og Sigurvin Lárus Jónsson þjóna ásamt leiðtogum sunnudagaskólans.
    Bangsar og gæludýr eru boðin velkomin.

    Sigurvin Lárus og Jökull að undirbúa bangsa- og gæludýraguðsþjónstu sunnudagsins.

 

Aldur: 3-18 mánaða, 6-9 ára, 9-16 ára, 10-12 ára, 13-14 ára, 13-16 ára, 14 ára, 16+ ára, 65+ ára
Vídalínskirkja, Garðakirkja
Jóhann Baldvinsson
johannagudrun
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
Sr. Matthildur Bjarnadóttir
Sr. Sigurvin Lárus Jónsson
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta

Hafa samband