Nú er vetrarstarfið að hefjast í Vídalínskirkju. Fyrsta messa haustsins verður sunnudaginn 1. september n.k. Þetta er fjölskylduguðsþjónusta sem markar upphaf sunnudagaskólans á komandi vetri.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, Benedikt Sigurðsson guðfræðingur og fræðarar sunnudagaskólans leiða stundina.
Barnakórar Vídalínskirkju syngja undir stjórn Ingvars Alfreðssonar og Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur.