Sumarmessa í Garðakirkju kl. 11.00. Sr. Sigurvin Lárus Jónsson, nýr prestur Garðaprestakalls, þjónar fyrir altari og predikar. Ingvar Alfreðsson sér um tónlistina ásamt félögum í Gospelkór Jóns Vídalín.
Björn Pétursson bæjarminjavörður Hafnarfjarðar flytur áhugavert erindi sem hann kallar „Garðakirkja og kirkjulausi kaupstaðurinn" í messukaffinu í hlöðunni á Króki á eftir messu.
Beint streymi á facebook.com/sumarmessur.
Sumarmessur eru samstarfsverkefni safnaðanna í Hafnarfirði, Álftanesi og Garðabæ og eru í Garðakirkju kl. 11 alla sunnudaga í júní, júlí og ágúst.
Opin þriðjudaga-föstudaga frá 10-15,
Kirkjulundi 3
210 Garðabæ
Garðar, Álftanesi
Garðar, Álftanesi