Sumarmessa í Garðakirkju 14. júlí

Sumarmessa í Garðakirkju kl. 11.00. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar fyrir altari og fjallar um ljóð Ísaks Harðarsonar skálds. Ingvar Alfreðsson sér um tónlistina ásamt félögum í Gospelkór Jóns Vídalín. Dr. Guðmundur Brynjólfsson djákni, rithöfundur, bókmenntafræðingur og leikhúsfræðingur flytur ljóð í messukaffinu í hlöðunni á Króki á eftir messu. Beint streymi á facebook.com/sumarmessur. Sumarmessur eru samstarfsverkefni safnaðanna í Hafnarfirði, Álftanesi og Garðabæ og eru í Garðakirkju kl. 11 alla sunnudaga í júní, júlí og ágúst.

Ísak Harðarson ljóðskáld og rithöfundur kom fyrst fram á sjónarsviðið sem skáld árið 1982 er hann fékk viðurkenningu AB fyrir ljóðabókina Þriggja orða nafn. Hann lést á síðasta ári eftir snörp veikindi. Á heimasíðu bókaútgáfunnar Forlagsins er eftirfarandi texti um Ísak: „Ísak Harðarson er fæddur í Reykjavík 1956. Hann lauk stúdentsprófi 1977 og stundaði síðan nám við Kennaraháskóla Íslands auk íslenskunáms við Háskóla Íslands. Fyrsta bók Ísaks, ljóðabókin Þriggja orða nafn, kom út árið 1982. Í kjölfarið fylgdu margar fleiri ljóðabækur, smásagnasöfn, skáldsaga og endurminningabók. Ljóð hans komu einnig út í safnritinu Ský fyrir ský árið 2000. Ísak hefur samið söngtexta og ljóð hans verið flutt með tónlist; ljóð eftir hann hafa einnig birst í erlendum tímaritum og sýnisbókum. Ísak hefur um árabil verið ötull þýðandi og hefur þýtt fjölda bóka úr ensku og Norðurlandamálum á íslensku. Ljóð og sögur Ísaks hafa frá fyrstu tíð vakið athygli og fengið mikið lof. Hann hefur hlotið verðlaun úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins og árið 2011 var tíunda ljóðabók hans, Rennur upp um nótt, sem kom út 2009, tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.“
Ljósmyndin af Ísak Harðarsyni, hér að neðan, er fengin að láni á forlagid.is

Dr. Guðmundur S. Brynjólfsson lauk BA-prófi í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, MA-prófi í leiklistarfræðum frá Royal Holloway, University of London, djáknanámi frá Háskóla Íslands og tók vígslu sem djákni árið 2012 en lauk síðar MA-prófi í almennri bókmenntafræði frá Háskóla Íslands. Guðmundur er rithöfundur og leikskáld en fæst einnig við kennslu og ýmis sérfræðistörf. Þess skal getið að dr. Guðmundur er fyrsti íslenski djákninn sem lýkur doktorsprófi. (Heimild: kirkjan.is)

Garðakirkja
Sunnudagur 14. júl
11:00
Ingvar Alfreðsson
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
Facebook
LinkedIn
Tölvupóstur
Prenta

Hafa samband