Biskup Íslands staðfesti á vordögum niðurstöður valnefndar um val í nýjum presti í Garðaprestakalli í Kjalarnesprófastsdæmi. Það var sr. Sigurvin Lárus Jónsson sem hlaut ráðninguna.
Sr. Sigurvin Lárus Jónsson er fæddur árið 1978. Foreldrar hans eru Jón Lárus Sigurðsson fyrrverandi yfirlæknir á Röntgendeild Landspítala Íslands og Sif Sigurvinsdóttir læknaritari. Eiginkona sr. Sigurvins er Rakel Brynjólfsdóttir bókmenntafræðingur og er hann faðir þriggja drengja.
Sigurvin lauk cand. theol. prófi frá Háskóla Íslands árið 2006 og MA gráðu í nýjatestamentisfræðum frá sama skóla árið 2014. Hann varði doktorspróf við Árósarháskóla í nýjatestamentisfræðum árið 2019 og var í rannsóknardvöl við Emory háskóla í Bandaríkjunum árin 2016 og 2018. Frá árinu 2019 til ársins 2022 kenndi Sigurvin við háskólann í Münster, sem rannsakandi (wissenschaftlicher mitarbeiter) og síðan sem stundakennari. Þá hefur hann sinnt stundakennslu í grísku og ritskýringu við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.
Sigurvin starfaði í Laugarneskirkju á námsárum og að loknu guðfræðiprófi í Neskirkju við Hagatorg á árunum 2006-2016, fyrst sem æskulýðsfulltrúi, þá æskulýðprestur frá árinu 2011 og loks settur prestur. Hann þjónaði sem settur sóknarprestur í Laugarneskirkju veturinn 2013-2014. Samhliða fræðastörfum þjónaði hann sem prestur í Fríkirkjunni í Hafnarfirði árin 2019-2021 og í Fríkirkjunni í Reykjavík frá árinu 2021.
Sr. Sigurvin hefur birt fjölda greina um guðfræði og samfélagsmál og gefið út bækur erlendis á sviði nýjatestamentisfræða.
Fyrsta embættisverk sr. Sigurvins í nýju starfi verður Sumarmessa í Garðakirkju þann 28. júlí n.k. Hann hefur síðan formlega störf þann 1. ágúst n.k.
Opin þriðjudaga-föstudaga frá 10-15,
Kirkjulundi 3
210 Garðabæ
Garðar, Álftanesi
Garðar, Álftanesi