
Vídalínskirkja og Gospelkór Jóns Vídalíns bjóða ykkur á vortónleika í Vídalínskirkju, sunnudaginn 21. maí klukkan 20:00.
Kórinn flytur hressandi dægurlög í bland við kraftmikið gospel undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar ásamt hljómsveit.
Undirleikarar eru:
- Ingvar Alfreðsson, píanó
- Benedikt Brynleifsson, trommur
- Valdimar Olgeirsson, bassi
- Davíð Sigurgeirsson, gítar og kórstjórn
Aðgangur er ókeypis í boði Vídalínskirkju og Gospelkórsins.