Comments are off for this post

Orðsending til foreldra barna í Garðabæ sem fædd eru árið 2010

Garðabæ 14. apríl 2023

Kæru foreldrar/forráðamenn,

Sunnudaginn 30. apríl hefst fermingarundirbúningurinn formlega í Garðabæ með því að við bjóðum fermingarbörnum og aðstandendum þeirra til guðsþjónustu kl. 11:00 í Vídalínskirkju. Stundin er sniðin að því að upplýsa og bjóða ykkur sérstaklega velkomin inn í þessa fallegu samleið sem fermingarveturinn er í lífi fjölskyldunnar.

Strax að lokinni guðsþjónustunni er stuttur fundur þar sem skráning á fermingardagana er kynnt og farið yfir helstu tímasetningar á haustönninni, eins og fermingarferðalög í Vatnaskóg og fermingartíma. Að fundi loknum verður hægt að koma með fyrirspurnir eða að senda póst á jonahronn@gardasokn.is sem yrði svarað eftir helgina. Boðið verður upp á hressingu að loknum fundi í safnaðarheimilinu. Hér að neðan er hægt að sjá hvaða fermingardagar og fermingar- athafnir eru í boði. Við hlökkum til að eiga þessa stund með ykkur.

Með blessunaróskum

sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
sóknarprestur

Comments are closed.