
Sunnudagaskóli verður í Urriðaholtsskóla kl.10:00 á sunnudaginn. Það verður einnig sunnudagaskóli í Vídalínskirkju kl.11:00. Brúðuleikrit, söngur og gleði fyrir börnin.
Kl. 11:00 verður guðsþjónusta í Vídalínskirkju. Sr. Sveinbjörn R. Einarsson predikar og þjónar fyrir altari. Félagar í kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar organista.
Messukaffi í boði að lokinni athöfn.
Verið öll hjartanlega velkomin!