
Sunnudagaskóli í Urriðaholti kl. 10.00 og í safnaðarheimilinu kl. 11.00
Kl. 11.00 Guðsþjónusta í Vídalínskirkju. Jóhann Baldvinsson leikur á orgelið og stýrir söng. Félagar úr Kór Vídalínskirkju syngja. Sr. Henning Emil Magnússon þjónar. Alrún María Skarphéðinsdóttir mun leika þrjú verk fyrir okkur á flygilinn. Sunnudagaskóli á sama tíma.
Kl. 20:00 verður íhugunarguðsþjónusta með tónlist AdHd í Vídalínskirkju. Þar verður lögð áhersla á að vera í vitund sem er íhugul um leið og hlýtt er á tónlist AdHd. Hver og einn kirkjugestur fær að upplifa stundina á eigin forsendum. Það er afar mikilvægt að rækta sitt andlega líf og veita hlutum athygli, njóta líðandi stundar og kyrra hugann. Það hefur verið sýnt fram á að ef tekinn er frá tími í andlega rækt og íhugun styður það við heilsuna og styrkir fólk í að takast á við það sem mætir því í lífinu. Hljómsveitin AdHd hefur verið starfandi um nokkuð skeið og er skipuð Ómari Guðjónssyni gítarleikara, Óskari Guðjónssyni saxófónleikara, Magnúsi Trygvasyni Eliassen trommara og Tómasi Jónssyni hljómborðsleikara.
Bylgja Dís Gunnarsdóttir, sr. Henning Emil Magnússon og sr. Hjalti Jón Sverrisson þjóna.
Í Þjóðkirkjunni hefur verið lögð aukin áhersla á íhugunar- og kyrrðarstarf síðustu árin. Starf þetta er í miklum vexti. Margar kirkjur bjóða t.a.m. upp á kyrrðarbænastundir. Eitt af því sem hefur bæst í flóruna eru íhugunarguðsþjónustur. Þær eru nú á fimmta starfsári og hafa verið haldnar víða. Áherslan í íhugunarguðsþjónustum er á kyrrð, bæn, íhugun og andlega næringu fyrir komandi viku.