Comments are off for this post

Bæanaátak í Garðasókn

Form fyrir sameiginlegar bænastundir í sóknakirkjum á Íslandi

 

  1. Kirkjuklukkunar hringja til bænar, samlíðunar og samábyrgðar á Íslandi.
  2. Kirkjuklukkurnar hringja og minna okkur á að jörðin er heimili okkar.
  3. Kirkjuklukkunar hringja til varnar lífinu. Jörðin er í háska stödd. Allt sem við viljum af henni njóta skulum við henni gjöra.
  4. Kirkjuklukkurnar hringja til iðrunar og yfirbótar, til nýrra lífshátta, til persónulegrar ábyrgðar og virðingar fyrir lífinu.
  5. Kirkjuklukkunar hringja í þökk fyrir lífið, því fögur er foldin, heimili okkar, góð er hún börnum sínum og takmarkalaus er útsýnin mót ómælisdjúpum himingeimsins.
  6. Kirkjuklukkurnar hringja í bæn fyrir lífi jarðar: Mannkyn megi vaxa í samlíðun, jöfnuði, heilbrigði og samábyrgð. Hreinn sjór vefji landið okkar örmum, tær vötn renni til hreinna stranda, hreinir vindar blási um jarðalendur og vitur hjörtu styrki hlýjar hendur.

 

 

Ritningarlestrar

 

„Óttast eigi því að ég er með þér, vertu ekki hræddur því að ég er þinn Guð. Ég styrki þig, ég hjálpa þér, ég styð þig með sigrandi hendi minni. Því að ég, Drottinn er Guð þinn, ég held í hægri hönd þína og segi við þig: „Óttast eigi, ég bjarga þér (Jesja 41)

Drottinn, þú rannsakar og þekkir mig,

hvort sem ég sit eða stend, þá veist þú það,

2þú skynjar hugrenningar mínar álengdar.

3Hvort sem ég geng eða ligg, þá athugar þú það

og alla vegu mína gjörþekkir þú.

4Eigi er það orð á tungu minni

að þú, Drottinn, þekkir það eigi til fulls.

5Þú umlykur mig á bak og brjóst

og hönd þína hefur þú lagt á mig.

6Sú þekking er undursamlegri en svo að ég fái skilið,

of háleit, ég er henni eigi vaxinn.

7Hvert get ég farið frá anda þínum,

hvert flúið frá augliti þínu?

8Þótt ég stigi upp í himininn, þá ertu þar,

þótt ég gerði undirheima að hvílu minni, þá ertu einnig þar.

9Þótt ég lyfti mér á vængjum morgunroðans

og settist við hið ysta haf,

10einnig þar mundi hönd þín leiða mig

og hægri hönd þín halda mér. (sálmur 139)

Því að ég, Drottinn, er Guð þinn,

ég held í hægri hönd þína

og segi við þig: „Óttast eigi,

ég bjarga þér.“ (Jesja 41:13)

 

Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld (Matt 11:28)

 

En ég hrópa til Guðs

og Drottinn mun hjálpa mér.

18Morgun, kvöld og miðjan dag

kveina ég og styn

og hann bænheyrir mig, (Sálmur 55,17-18)

 

Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið í öllum hlutum óskir ykkar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu ykkar og hugsanir ykkar í Kristi Jesú. (Filippí. 4: 6-7)

 

Drottinn, þú hefur verið oss athvarf

frá kyni til kyns.

2Áður en fjöllin fæddust

og jörðin og heimurinn urðu til,

frá eilífð til eilífðar ert þú, ó Guð.

14Metta oss að morgni með miskunn þinni,

að vér megum fagna og gleðjast alla daga vora.(Sálmur 90)

 

Því að ég þekki sjálfur þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður, segir Drottinn, fyrirætlanir til heilla en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Þegar þér ákallið mig og komið og biðjið

til mín mun ég bænheyra yður. Ef þér leitið mín munuð þér finna mig. Þegar þér leitið mín af öllu hjarta læt ég yður finna mig, segir Drottinn.(Jeremía er 29.11-14a)

 

Í Jóhannesarguðspjalli segir Jesús Kristur: „Frið læt ég yður eftir, minn frið gef ég yður. Ekki gef ég yður eins og heimurinn gefur. Hjarta yðar skelfist ekki né hræðist.“ (Jóh 14.27)

 

 

Bænir

 

Guð allrar huggunar.

Við biðjum fyrir sjúkum og sorgmæddum, öllum sem skortir heilsu og styrk og þeim sem áhyggjur þjaka. Við biðjum sérstaklega fyrir þeim sem veikst hafa af völdum Covid-19 veirunnar. Vertu með þeim öllum. Hjálpaðu og líknaðu þeim sem þjást og syrgja. Styrktu þau í trúnni og vektu hjá þeim von og traust.

Við biðjum fyrir heilbrigðisstarfsfólki og öllum sem búa við mikið álag um þessar mundir við að fyrirbyggja vá og vakta stöðuna almenningi til heilla. Vertu með þeim öllum og hjálpaðu þeim og okkur að takast á við þessa vá af yfirvegun og skynsemi, minnug þess að í samfélagi okkar eru aldraðir ástvinir og fólk með undirliggjandi sjúkdóma sem okkur ber að vernda með því að sýna ábyrgð. Gefðu okkur styrkt til að láta óttann ekki ná tökum á okkur, minnug þess að meðal okkar eru ungar og viðkvæmar sálir sem óttinn getur líka leikið grátt.

Við biðjum þess, góði Guð, að þegar þetta allt er yfirstaðið höfum við lært að vera þakklát fyrir eitt og annað sem okkur hættir til að ganga að sem vísu, svo sem innilegum samskiptum við vini og vandamenn, mannfagnaði og samfélag við aðra, ferðafrelsi og óttaleysi. Hjálpaðu okkur að muna að ekkert af þessu er sjálfsagt, að þetta eru lífsgæði sem okkur ber að vera þakklát fyrir.

Miskunnsami Guð. Við biðjum þig að gera okkur ævinlega minnug þess, þegar þetta allt er yfirstaðið, að þau sem björguðu okkur voru heilbrigðisstarfsfólk, ræstitæknar og umönnunarstéttir. Við þökkum þér fyrir dugnað og elju þeirra og biðjum þig að vaka yfir þeim og blessa störf þeirra. Opnaðu augu okkar, góði Guð, fyrir því hver það eru meðal okkar sem gegna ábyrgðarstörfum í almannaþágu. Við þökkum þér, Guð almáttugur, að við getum komið fram fyrir þig og lotið höfði í bæn, fullviss þess að þú heyrir bænir okkar. Ekkert er þér hulið. Þú þekkir hugrenningar okkar álengdar og veist hvað okkur býr í brjósti á hverri stundu betur en við sjálf erum fær um að færa það í orð. Amen

Þögn til hljóðrar bænar

Heimsfaraldursbæn

 

Mættum við sem verðum fyrir minni háttar óþægindum vegna veirunnar

minnast þeirra sem eru í lífshættu.

Mættum við sem höfum engan undirliggjandi vanda

minnast þeirra viðkvæmustu.

Mættum við sem búum við þau þægindi að geta sinnt vinnu okkar heima

minnast þeirra sem þurfa að velja á milli þess

að halda heilsu eða eiga fyrir leigunni.

Mættum við hafa nægan sveigjanleika til að annast börnin okkar þegar skólastarf er takmarkað

og minnast þeirra sem hafa ekkert val.

Mættum við sem þurfum að hætta við ferðalagið okkar

minnast þeirra sem eiga sér engan áfangastað.

Mættum við sem verðum af hagnaði í umróti fjármálamarkaðarins

minnast þeirra sem alls engan hagnað hafa.

Mættum við sem komum okkur notalega fyrir í sóttkví heima

minnast þeirra sem eiga í engin hús að venda.

Þegar óttinn grípur um sig

skulum við velja kærleikann.

Á meðan við getum ekki vafið hvert annað örmum bókstaflega

skulum við finna leiðir

til að vera kærleiksríkt faðmlag Guðs til náunga okkar.

Amen.  (Af fasbókarsíðunni The Celtic Christian Tradition

eftir Cameron Bellm

Íslensk þýðing: María Guðrúnar. Ágústsdóttir)

 

Þögn til hljóðrar bænar

 

Skapari, frelsari, heilagur andi, þú mætir okkur í samferðafólki okkar. Þökk sér þér fyrir manneskjurnar sem þjóna samfélaginu af hugsjón, einurð, kærleika og spara hvergi krafta sína á krefjandi tímum. Við nefnum sérstaklega hér heilbrigðisstarfsfólk, Almannarvarnir og Landlæknisembættið, þau sem standa í stafni og stýra ráðum svo heilsa okkar til líkama og sálar megi varðveitast sem best. Vertu þeim aðilum sú uppspretta visku, æðruleysis og auðmýktar sem andi þinn einn fær ráðið og stýrt. Gefðu okkur sem þjóð einn hug og eitt hjarta og eyra til að heyra andvörp náungans, einsemd og kvíða. Gefðu okkur kjark til að elska og annast hvert annað, elsku Jesús Kristur. Amen

 

Þögn til hljóðrar bænar

 

Ástríki Guð. Þú þekkir líf okkar allra og umhverfi, fjölskyldu, störf, áhugamál og framtíðarplön. Það sem meira er, þú veist hvernig okkur líður og af hverju okkur líður eins og okkur líður. Þú þekkir gleði okkar og tilhlökkunarefni, þú þekkir væntingar okkar og sjálfstraust, draumana okkar en þú þekkir líka óttann okkar, áhyggjurnar, efann, kvíða, depurðina og sorgina, reiðina, sektarkenndina, skömmina, gremjuna, öfundsýkina, afbrýðisemina, óöryggið. Þú lest okkur eins og opna bók og þekkir okkar dýpstu hugsanir og samt, þrátt fyrir allt og allt þá elskarðu okkur og gengur með okkur. Þrátt fyrir allt gafstu son þinn svo við mættum lifa. Hjálpaðu okkur Guð að horfast í augu við þessa undursamlegu staðreynd að þú ætlar aldrei að yfirgefa okkur og jafnvel þótt við missum trúna á þig, hættir þú aldrei að trúa á okkur. Amen

 

Þögn til hljóðrar bænar

Lifandi, eilífi Guð.

Þegar þetta ástand er yfirstaðið,

gef að við munum aldrei taka neinu í lífinu sem sjálfsögðu; handabandi við ókunnuga, fulla búð matar, samtali við nágranna, sneisafull samkomuhús, föstudagskvöldi með vinafólki, bragði og áhrifum altarissakramentisins, árvissri læknisheimsókn, örtröð við barnaskóla, kaffisopa með félaga, ys og þys á vellinum, hvern andardrátt, dauflegan þriðjudag, lífinu sjálfu.

Þegar þessu lýkur,

gef að við upplifum

að við séum orðin líkari þeim sem við vildum líkjast, þeim sem við vonuðumst til að verða, og við biðjum þess að við megum varðveita áunna eiginleika til þess að við getum staðið með þeim sem minna mega sín á erfiðum tímum.

(Laura Kelly Fanucci/Þýðing Ása Björk Ólafsdóttir)

 

 

Þögn til hjóðrar bænar

 

Lifandi Guð, takk fyrir íslenska vorið og sumarið sem óðum þokast nær, fyrir fuglasöng dags og nætur, ilm af nýslegnu grasi og gróðurskúr, fyrir frí frá vinnu og fyrir samveru með fjölskyldu, fyrir náttúruna sem umlykur okkur með krafti sínum og óumræðilegri fegurð, fyrir göngu, hjól og reiðtúra, fyrir grillaðar pylsur og börn með grasgrænku í fötum, fyrir unglingana með orkudrykkina og Snapchattið sem spretta fram úr hýði sínu og sjá til sólar. Fyrir gamla fólkið sem getur loks gengið óstutt um auðar götur og tyllt sér á bekki, andað að sér sumrinu og yljað sér við geisla sólar og minninga. Umfram allt Drottinn þökkum við þér sumarið sem þú hefur boðið okkar að meðtaka allan ársins hring, sumar upprisunnar þar sem vonin er alltaf til staðar, líka þegar við erum veik, hrædd, sorgmædd og buguð en sjáum glitta í páskasól bak við ský og svo dregur frá af því að þannig er lífið góði Guð, þökk sé þér, að engin þjáning er endalaus, að sumarið þitt, lífið með þér er sterkara en óttinn, græðgin og skeytingarleysið. Við þökkum fyrir allar manneskjur sem feta þinn veg og kenna okkur sem erum þeim samferða að lifa fallega og fara fallega með lífið, taka því sem gjöf og ávaxta það öðrum til blessunar og þér til dýrðar. Við þökkum fyrir allt hugsjónafólk sem gefst aldrei upp þótt móti blási, fólk sem finnur nýjar leiðir til að hjálpa öðrum, fólk sem hefur alltaf trú á manneskjunni og getu hennar til að vera heilbrigð, gefandi og sátt. Hjálpaðu okkur góði Guð til að byggja upp réttlátt samfélag í þessu landi, þar sem velferð manneskjunnar, heilsa hennar og andleg líðan er sett í forgrunn, þar sem börnum er sinnt af natni, á þau hlustað og við þau talað, þar sem hælisleitendur eiga skjól og að þeim hlúð, þar sem konur og karlar eru jöfn í orði sem á borði, þar sem kynbundin mismunun er ekki liðin, ofbeldi eða áreitni. Gefðu okkur Drottinn augu þín að við sjáum hvert annað í birtu kærleika og miskunnsemi. Amen

 

Við þökkum þessa stund og felum allar okkar bænir í bæninni sem þú kenndir okkur…………..Faðir vor

 

Kristur, lát kirkju þína hringja helgi og frið inn í hjarta mitt.

Comments are closed.