Comments are off for this post

Messa næstkomandi sunnudag

Sunnudaginn 26.janúar er messa kl.11 í Vídalínskirkju.

Sr. Halldór Reynisson predikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum, en hann kemur inn í afleysingar í janúar í Garðaprestakalli. Sunnudagskoli á sama tíma sem Matthildur Bjarnadóttir æskulýðsfulltrúi leiðir ásamt fræðurum sunnudagaskólans. Kaffi eftir messu. Halldór Reynisson er fæddur í Reykjavík árið 1953. Hann er guðfræðingur frá HÍ, MA í fjölmiðlafræði frá Indiana University og með nám í markaðsfræðum frá Endurmenntunarstofun HÍ. Hann hefur starfað sem blaðamaður, forsetaritari, prestur í Hruna- og Nesprestakalli, rektor í Skálholti en starfar nú á Biskupsstofu. Allir velkomnir.

Comments are closed.