Blásarasveitin Luther Brass Frankfurt frá Þýskalandi kemur í heimsókn í Vídalínskirkju sunnudaginn 30. september og spilar í messu. Stjórnandi er Norbert Haas.
Kór Vídalínskirkju syngur einnig í messunni bæði með sveitinni og einn og sér. Stjórnandi er Jóhann Baldvinsson.
Sunnudagaskólinn verður á sama tíma.
Prestur: sr. Jóna Hrönn Bolladóttir.
Allir velkomnir!
Að lokinni messu býður þýska sendiráðið í Reykjavík í samstarfi við Diane Roehrig, staðgengil þýska sendiherrans, kirkjugestum upp á léttar veitingar í safnaðarheimili kirkjunnar.
Luther Brass Frankfurt er skipuð bæði atvinnuhljóðfæraleikurum og áhugafólki og er á leið til Bandaríkjanna en hefur hér stutta viðkomu.