Aðventuhátíð barnanna verður í Vídalínskirkju sunnudaginn 10.desember kl.11.
Börnin í TTT starfinu hafa æft upp helgileik og sýna.
Barnakór Vídalínskirkju flytur jólasálma-og lög undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar og Jóhönnu Guðrúnar Jónsdóttur.
Hljómsveit Vídalínskirkju flytur jólalag undir stjórn Ingvars Alfreðssonar.
Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir leiðir stundina.