No comments yet

Pílagrímagöngur í Garðaprestakalli

Okkur langar að benda á spennandi námskeið sem hófst þriðjudaginn 18.apríl kl 20.00 í Bessastaðakirkju en það fjallar um pílagrímagöngur fyrr og nú og samanstendur af fræðslu, góðu samfélagi og léttum göngum.

Stuttar pílagrímagöngur ásamt fræðslu.
Verið klædd til útivistar og göngu miðað við veður.

2. maí Pílagrímalífið – einfaldleikinn í lífinu
Mæting í Bessastaðakirkju kl 20

9. maí Helgi Þorláksson prófessor í sögu – Pílagrímaleiðir á Íslandi
Mæting í Garðakirkju kl 20

16. maí Dr. Margrét Jónsdóttir Njarðvík – Jakobsvegurinn
Mæting í Bessastaðakirkju kl 20

21. maí kl. 11 – Pílagrímamessa í Bessastaðakirkju

Post a comment